Brand |
Sérefni |
---|
Matt lakk
Cetol BL Varnish Mat
Cetol BL Varnish Mat er rispuþolið, vatnsþynnanlegt pólýúretanlakk, ætlað til notkunar innanhúss. Lakkið er auðvelt í notkun, rennur einkar vel út, þornar og harðnar hratt og hefur langan opinn tíma. Það er nánast lyktarlaust. Það er þvotthelt, afar slitsterkt og gulnar ekki með tímanum. Cetol BL Varnish Mat hefur mjúka og matta áferð sem dregur fram æðar viðarins. Lakkið er notað á gluggakarma, dyr, veggþiljur, parket og kork en hentar einnig sem hlífðarvörn yfir önnur málningarefni.
Product Enquiry
Sérefni ehf. voru stofnuð í apríl 2006 og hafa vaxið og dafnað jafnt og þétt og bjóða í dag upp á mjög breitt vöruúrval af málningarefnum, skrautefnum og verkfærum.
Frá upphafi hefur allt kapp verið lagt á góða þjónustu, faglega ráðgjöf og hágæðavörur sem skila árangri og endingu.
Tækniblöð frá Sérefni:
Related products
Akrýl gólfmálning
Akrýlgrunnur 2
Original Häftgrund Snickeri
Original Häftgrund er vatnsþynnanlegur, akrýlbundinn viðloðunar- og slípigrunnur fyrir ómálaða fleti og sem undirlag fyrir yfirmálun. Original Häftgrund er fyrst og fremst ætlaður til innanhússnotkunar á viðarfleti. Vegna einstakra viðloðunareiginleika má einnig nota grunninn á flísar, límtré, krossvið, hart PVC plast, lakkað tréverk og fleira.
Akrýllakk 40%
Original Snickerifärg Halvblank
Original Snickerifärg Halvblank er gelað, vatnsþynnanlegt, hálf-gljáandi og mjög vel þekjandi akrýllakk. Það er auðvelt í notkun og hentugt til málunar innanhúss, t.d. á dyrakörmum, sökklum og listum. Lakkið má einnig nota á járn og stál innanhúss. Original Snickerifärg Halvblank rennur einkar vel út, þekur vel og gulnar ekki með tímanum.
Límspartl
Professional Maskin
Professional Maskin er fyllandi alhliða léttspartl, hentugt til notkunar í nýbyggingum sem og eldra húsnæði. Notist við hvers konar spörtlun á byggingarplötum og steyptum flötum, ópússuðum sem pússuðum. Spartlið er einstaklega þægilegt til ásetningar með háþrýstisprautum, Bazooka sprautum og spartlboxi. Það má einnig nota á veggfóðurssamskeyti og málaða fleti í þurrum rýmum innanhúss. Vegna sérstakrar efnasamsetningar hentar Professional Maskin spartlið afar vel við lagningu borða í veggjasamskeyti samkvæmt stöðlum HusAMA 11.
Medium spartl
Professional Medium
Professional Medium/LS 104 er fyllandi alhliða léttspartl, sérstaklega þróað til notkunar við endurbætur á eldra húsnæði en hentar einnig vel í nýbyggingum. Notist við hvers konar spörtlun á byggingarplötum og steyptum flötum, ópússuðum sem pússuðum. Professional Medium/LS 104 má einnig nota á veggfóðurssamskeyti og málaða fleti í þurrum rýmum innanhúss o.fl. Vegna sérstakrar efnasamsetningar er spartlið hentugt við lagningu borða í veggjasamskeyti samkvæmt stöðlum HusAMA 11.
Olíugrunnur Nordsjö
Professional Traditional Häftgrund
Professional Traditional Häftgrund er terpentínuþynnanlegur alkýðgrunnur með framúrskarandi viðloðun og góða þekju. Efnið er ætlað til innanhússnotkunar á ómálaða sem málaða fleti. Góð viðloðun Professional Traditional Häftgrund gerir það að verkum að aðeins þarf að léttpússa hála fleti áður en grunnað er. Það á við um flísar, lakkað tréverk, plastfilmuplötur og fleira.
Parketlakk Nordsjö
Rúlluspartl
Professional Rullspackel
Professional Rullspackel er fyllandi alhliða léttspartl ætlað til rúlluspörtlunar innanhúss og er sérstaklega þróað til notkunar við endurbætur á eldra húsnæði en hentar einnig vel í nýbyggingum. Notist við hvers konar spörtlun á byggingaplötum og steyptum flötum, ópússuðum sem pússuðum. Professional Rullspackel má einnig nota á veggfóðurssamskeyti og málaða fleti í þurrum rýmum innanhúss o.fl. Vegna sérstakrar efnasamsetningar Professional Rullspackel er spartlið hentugt við lagningu borða í veggjasamskeyti samkvæmt stöðlum HusAMA 11.