TILBOÐSVÖRUR
Showing all 6 results
Auðþrifin veggjamálning
Perform+ Easy2Clean
Perform+ Easy2Clean er mött vatnsþynnanleg akrýlmálning sem er afar létt og einfalt að þrífa. Hún hentar vel þar sem þörf er á sérlega slitsterku yfirborði, t.d. í eldhúsi, gangi, forstofu og barnaherbergjum. Málningin þekur vel, hefur gott flot og því auðvelt að mála með henni. Perform+ Easy2Clean er ætluð til notkunar á steypta veggi (pússaða sem ópússaða), gifsveggi, byggingarplötur o.fl. 
Baðherbergjamálning
Perform+ Bathroom
Perform+ Bathroom er hálfgljáandi, vatnsþynnanleg málning til notkunar innanhúss á steypta veggi, gifs, byggingaplötur, o.fl. Málningin er ætluð á veggi og loft í eldhúsum, baðherbergjum, þvottahúsum, rýmum í sjúkrahúsum, matvælaiðnaði og öðrum þeim rýmum þar sem krafist er mikils slitstyrks, þvottheldni og góðrar endingar. Hún inniheldur mygluvörn og hentar því einstaklega vel í rökum rýmum. Perform+ Bathroom er viðurkennd málning samkvæmt viðmiðunarstaðli MVK fyrir rými sem eiga að þola raka.
Nanóakrýl
One Super Tech
One Super Tech er sjálfhreinsandi vatnsþynnanleg akrýlmálning til notkunar á tréverk. Vegna einstakra eiginleika málningarinnar, sem byggir á nanó-tækni, helst hinn málaði flötur hreinn þar sem regnvatn tekur með sér óhreinindi af honum. One Super Tech er afar vel þekjandi málning sem gefur jafnt yfirborð og heldur lit sínum vel. Ef One Super Tech málningin er notuð samhliða Tinova Wood Base Oil og Tinova Primer Exterior endist málningin upp undir 16 ár við eðlilegar aðstæður. One Super Tech hentar einnig á litaðar klæðningar, grunnmálað bárujárn og steinsteypta fleti utanhúss.
Pallaolía
Tinova Traditional Allround Oil
Tinova Traditional Allround Oil er pallaolía sem hefur einstaka eiginleika til að smjúga vel inn í við og hindrar þannig rakaupptöku, minnkar sprungumyndun og viðheldur náttúrulegu útliti viðarins. Tinova Traditional Allround Oil er ætluð til notkunar á mismunandi tegundir viðar utanhúss, fæst bæði glær og í fjölda lita. 
Sett M18 FPP2A3-502X Borvél og höggskrúfvél
Lýsing
Settið inniheldur:
1. M18 FUEL™ borvél FPD3-0X.
158Nm og einungis 175mm að lengd, auðveldar vinnu í þröngum rýmum.
Einkaleyfisvarin AUTOSTOP™ kúpling kemur í veg fyrir snúning ef borinn festist.
Tveir gírar 0-500sn/mín. og 0-2100sn/mín.
0-33.000 högg/mín.
Bjart LED ljós.
Kolalaus POWERSTATE™ mótor fyrir allt að 10x lengri mótor líftíma og allt að 25% meira afl.
2. M18 FUEL™ Höggskrúfvél FID3-0X
Einungis 113mm að lengd
226 Nm
4 átaksstillingar
POWERSTATE™ kolalaus mótor veitir aukin afköst, endist lengur og skilar hámarksafli
REDLINK™ er háþróuð stafræn yfirálagsvörn fyrir verkfæri og rafhlöður sem eykur einnig afl undir álagi
Virkar með öllum MILWAUKEE® M18™ rafhlöðum
1/4″ skrúfbitahaldari
Kemur með 2 x 5.0Ah M18 rafhlöðum, Hleðslutæki M12-18FC Rapid
og plasttösku.