Showing 19–27 of 46 results

Glær bindigrunnur

Professional Microdispers

Professional Microdispers er alkalíþolinn, vatnsþynnanlegur akrýlbindigrunnur, blátónaður og gelkenndur. Grunninn má nota innan- og utanhúss á pússaða og ópússaða steypta fleti, gifsplötur, steintrefjaplötur og spartlaða fleti. Hann bindur sig vel við gleypið undirlag og eykur viðloðun fyrir málningu. Professional Microdispers skal ætíð nota sem bindigrunn á kalkmálaða fleti við endurmálun með innimálningu.

Grófspartl

Professional Grov Professional Grov er afar fyllandi léttspartl, sérlega hentugt þar sem þörf er á efnismikilli fyllingu. Notist á samskeyti og til víðtækari spörtlunar á steypta fleti, ópússaða sem pússaða, og á byggingaplötur. Einnig má nota Professional Grov á mattslípaða málaða fleti í þurrum rýmum innanhúss o.fl. svanurinn

Grunnmálning undir vatnslökk

Rubbol BL Primer

Rubbol BL Primer er þekjandi, vatnsþynnanlegur pólýúretangrunnur, ætlaður til notkunar innanhúss. Hann er auðveldur í notkun, rennur einkar vel út og þornar og harðnar hratt. Hann sápast ekki, hleypir raka frá undirlagi í gegnum sig og hefur langan opinn tíma. Er ekki eldfimur. Rubbol BL Primer grunnurinn er ætlaður sem fyrsta lag á við, steypu, gifs og PVC (nema pólýolefín plastefni, t.d. PE og PP). Hann er einnig hentugur á fleti sem hafa áður verið málaðir með alkýðmálningu; þá er mikilvægt að hreinsa og slípa fletina fyrir málun. Grunnurinn hefur góða viðloðun við beran við, gifs, áður málaða fleti og ryðvarnargrunna.

Húsgagnalakk

Original Möbellack Halvblank

Original Möbellack Halvblank er hálfgljáandi, glært, vatnsþynnanlegt lakk til notkunar á húsgögn og aðra fleti sem verða að hafa slitsterkt yfirborð. Original Möbellack Halvblank þolir vel vatn, fitu og ýmis hreinsiefni.

Kvistalakk

Original Kvistlack

Original Kvistlack er glært, vatnsþynnanlegt, hraðþornandi og einangrandi lakk sem kemur í veg fyrir að vessar úr kvistum blæði í gegnum málningu á viði innanhúss.

Límspartl

Professional Maskin

Professional Maskin er fyllandi alhliða léttspartl, hentugt til notkunar í nýbyggingum sem og eldra húsnæði. Notist við hvers konar spörtlun á byggingarplötum og steyptum flötum, ópússuðum sem pússuðum. Spartlið er einstaklega þægilegt til ásetningar með háþrýstisprautum, Bazooka sprautum og spartlboxi. Það má einnig nota á veggfóðurssamskeyti og málaða fleti í þurrum rýmum innanhúss. Vegna sérstakrar efnasamsetningar hentar Professional Maskin spartlið afar vel við lagningu borða í veggjasamskeyti samkvæmt stöðlum HusAMA 11.

Matt lakk

Cetol BL Varnish Mat

Cetol BL Varnish Mat er rispuþolið, vatnsþynnanlegt pólýúretanlakk, ætlað til notkunar innanhúss. Lakkið er auðvelt í notkun, rennur einkar vel út, þornar og harðnar hratt og hefur langan opinn tíma. Það er nánast lyktarlaust. Það er þvott­helt, afar slitsterkt og gulnar ekki með tímanum. Cetol BL Varnish Mat hefur mjúka og matta áferð sem dregur fram æðar viðarins. Lakkið er notað á gluggakarma, dyr, veggþiljur, parket og kork en hentar einnig sem hlífðarvörn yfir önnur málningarefni.  

Matt vatnsþynnanlegt pólýúretanlakk

Wapex PUR Clearcoat

Wapex PUR Clearcoat er glært og matt, tveggja þátta vatnsþynnanlegt pólýúretanlakk, ætlað til málunar á steypta fleti innanhúss, s.s. flotuð gólf og veggi. Lakkið hentar sem parketlakk og myndar einnig prýðilega aukavörn á málaða veggi. Wapex Pur Clearcoat er einstakt að því leyti að það breytir ekki lit (dekkir ekki) eða áferð steypu og flotefna. Wapex PUR Clearcoat hefur langan notkunartíma og er auðvelt í notkun, þornar hratt, þolir bleytu og kemísk efni vel, er höggþolið og afar slitsterkt. Lakkið er létt í þrifum og lyktarlítið og hentar því sérlega vel í rýmum þar sem leysiefnalakk er ekki leyft. Hentar ekki á bílskúrsgólf.  

Medium spartl

Professional Medium

Professional Medium/LS 104 er fyllandi alhliða léttspartl, sérstaklega þróað til notkunar við endurbætur á eldra húsnæði en hentar einnig vel í nýbyggingum. Notist við hvers konar spörtlun á byggingarplötum og steyptum flötum, ópússuðum sem pússuðum. Professional Medium/LS 104 má einnig nota á veggfóðurssamskeyti og málaða fleti í þurrum rýmum innanhúss o.fl. Vegna sérstakrar efnasamsetningar er spartlið hentugt við lagningu borða í veggjasamskeyti samkvæmt stöðlum HusAMA 11. svanurinn