Showing 37–46 of 46 results

Pólýúretan lakk 90%

Rubbol BL Azura

Rubbol BL Azura er hágæða, hágljáandi, vatnsþynnanlegt pólýúretan lakk, ætlað til notkunar innan- og utanhúss. Rubbol BL Azura er auðvelt í notkun, rennur einkar vel út, þornar og harðnar hratt, hefur langan opinn tíma og er afar slitsterkt. Lakkið fyllir vel, er lyktarlítið, hefur góða litheldni og er ekki eldfimt. Rubbol BL Azura er ætlað sem ysta lag á við, PVC harðplast, steypu og gifs og er borið ofan á undirlag af vatnsþynnan­legum grunni. Einnig er það hentugt á hreina og slípaða alkýðgrunna. Notið alltaf vatnsþynnanlega grunna utandyra.  

Rúlluspartl

Professional Rullspackel

Professional Rullspackel er fyllandi alhliða léttspartl ætlað til rúlluspörtlunar innanhúss og er sérstaklega þróað til notkunar við endurbætur á eldra húsnæði en hentar einnig vel í nýbyggingum. Notist við hvers konar spörtlun á byggingaplötum og steyptum flötum, ópússuðum sem pússuðum. Professional Rullspackel má einnig nota á veggfóðurssamskeyti og málaða fleti í þurrum rýmum innanhúss o.fl. Vegna sérstakrar efnasamsetningar Professional Rullspackel er spartlið hentugt við lagningu borða í veggjasamskeyti samkvæmt stöðlum HusAMA 11. svanurinn

S-sprautuspartl

Professional Sprutspackel Professional Sprutspackel er sprautuspartl ætlað á loft og veggi í þurrum rýmum innanhúss. Efnið er fyrst og fremst þróað fyrir víðtæka og mikla notkun á loft og veggi, hvort sem er í nýbyggingum eða eldra húsnæði. Spartlið hentar einnig til að hrauna yfirborð lofta.

Samskeytaspartl

Professional Rems- & Skarv

Professional Rems- och Skarvspackel er háfyllandi, meðalgróft og umhverfisvænt léttspartl sem er sérstaklega þróað til spörtlunar og styrkingar á gifsplötusamskeytum með pappírsborðum. Vegna sérstakrar efnasamsetningar er þetta spartl einstaklega hentugt við lagningu borða í samskeyti samkvæmt stöðlum HusAMA 14. Rems- och Skarvspackel má einnig nota til bletta- og alspörtlunar á veggi og loft úr gifsi og steypu, sem og á trétrefja- og spónaplötur og lík byggingarefni. svanurinn   

Spartlgrunnur

Professional Grund +

Professional Grund+ er almattur, vatnsþynnanlegur grunnur til notkunar á veggi og loft innanhúss. Hann hefur hátt þurrefnainnihald, þekur vel og gefur sérlega góða viðloðun við ólíkt undirlag. Hin einstaka uppbygging efnisins stuðlar að minni notkun yfirmálningar og gefur henni jafnara yfirbragð, bæði í gljáa og áferð. Professional Grund+ er notað sem grunnur á spartlaða fleti, gifsveggi, steinveggi, byggingarplötur af ólíkri gerð o.fl. svanurinn     evropublomid1     Astma-och-Allergi-förbundet

Vatnsþynnanleg epoxýmálning

Wapex 660

Wapex 660 er tveggja þátta vatnsþynnanleg epoxýmálning, ætluð til málunar á steypta fleti innanhúss, s.s. veggi og gólf. Wapex 660 hefur einnig góða viðloðun við flísar. Hún er auðveld í notkun, þolir bleytu og kemísk efni vel, er höggþolin og slitsterk. Málningin er létt í þrifum, lyktarlítil, óeldfim og hentar sérlega vel í rýmum þar sem leysiefnamálning er ekki leyfð.

Veggjamálning 7%

Ambiance Silkematt

Ambiance Silkematt er mött vatnsþynnanleg innimálning sem gefur veggjunum fallega silkimatta áferð. Efnið hefur sterkara yfirborð en önnur veggjamálning og er með góða þvottheldni. Ambiance Silkematt er innanhússmálning til notkunar á steypta veggi, pússaða sem ópússaða, gifsveggi, byggingarplötur o.fl. svanurinn     evropublomid1     Astma-och-Allergi-förbundet    

Votrýmisspartl

Professional Våtrum

Professional Våtrum er fyllandi léttspartl, hentugt til spörtlunar á samskeyttum veggjum í nýbyggingum sem og eldra húsnæði. Það hentar við spörtlun á steyptum flötum, ópússuðum sem pússuðum, byggingarplötum og við lagningu borða í veggjasamskeyti. Efnið er sérstaklega framleitt til notkunar í blautum og rökum rýmum þar sem gerð er krafa um mikið rakaþol. Professional Våtrum er hluti af kerfi vatnsþolinna efna frá Nordsjö sem viðurkennt er í atvinnustétt málara og uppfyllir þeirra staðla.

Þiljulakk 10%

Original Panellack Matt Original Panellack Matt er glært og silkimatt, vatnsþynnanlegt lakk til notkunar innanhúss á viðarfleti, svo sem veggjaþiljur, loftaplötur, lista og karma. Original Panellack Matt er með innbyggða vörn sem kemur í veg fyrir gulnun í viðnum. Á álagsfleti eins og eldhúsbekki og borðplötur er fremur mælt með Original Möbellack. Ekki skal heldur nota Original Panellack Matt á dökka fleti, steinveggi, múraða veggi eða veggfóðraða. Mögulegt er að tóna lakkið með litarefnum og nota til að hvítta eða bæsa við.

Þiljulakk 70%

Original Panellack Blank

Original Panellack Blank er gljáandi, vatnsleysanlegt lakk til notkunar á viðarfleti innanhúss, svo sem lista og karma, panil og hverskonar veggjaplötur og loftaplötur úr viði. Original Panellack Blank þolir vel raka, bleytu, fitu og ýmiss konar hreinsiefni. Efnainnihald lakksins hindrar að það gulni. Við málun eldhúsinnréttinga er ráðlegt að nota frekar Original Möbellack. Mögulegt er að tóna lakkið með litarefnum og nota til að hvítta eða bæsa við.