Showing 13–17 of 17 results

VIÐAR PALLAOLÍA

Viðar pallaolía er ætluð til notkunar á við utanhúss, til þess að koma í veg fyrir vatnsupptöku. Olían inniheldur efni til varnar sveppa- og gróðurmyndun. Viðar pallolía frískar útlit viðarins, kemur í veg fyrir ofþornun og sprungumyndun. Notkun: Viðar pallaolía er ætluð til notkunar á þrýstivarinn við, furu, tekk, eik, harðvið o.fl.  Olían hentar sérlega vel á sólpalla og viðarhúsgögn.

VIÐAR ÞEKJANDI

VIÐAR ÞEKJANDI er þekjandi viðarmálning byggð upp af alkýð/línolíu bindiefnum.  Málningin er létt í vinnslu, flýtur vel og myndar þekjandi filmu án þess að viðarmynstrið tapist.  Málningin hefur mjög góða smýgni og vætieiginleika á viðarfleti, ásamt því að mynda vatnsfráhrindandi og veðurþolna filmu og henta því íslenskum aðstæðum sérstaklega vel.  VIÐAR ÞEKJANDI inniheldur efni sem vernda viðinn gegn niðurbrotsáhrifum sólarinnar og efni til varnar gegn sveppa- og gróðurmyndun. Notkun: VIÐAR ÞEKJANDI er ætluð til málunar á nýjan við utanhúss, en er einnig hentug til endurmálunar á fleti málaða með hálfþekjandi eða þekjandi viðarvörn.

Viðarvörn – þekjandi og háfyllandi

Tinova VX 2 in 1 Exterior

Tinova VX 2 in 1 Exterior er samsett grunn- og þekjandi alkýðolíu-málning; hún er vatnsþynnanleg og hálfgljáandi, ætluð til málunar á við utanhúss. Tinova VX 2 in 1 Exterior er sérstaklega gerð fyrir kaldar og norðlægar aðstæður og inniheldur bindiefni sem Nordsjö hefur einkaleyfi fyrir, en það tryggir einstaka bindingu við undirlagið og myndar veðurþolna filmu sem ver viðinn sérlega vel. Mælt er með að nota grunnolíuna Tinova Wood Base Oil samhliða til að tryggja framúrskarandi endingu. FSC

Viðarvörn – þekjandi og háfyllandi

Professional VX+ 2 in 1

Professional VX+ 2 in 1 er samsett grunn- og þekjandi alkýðolíu­málning; hún er vatnsþynnanleg og hálfgljáandi, ætluð til málunar á við utanhúss. Professional VX+ 2 in 1 er sérstaklega gerð fyrir kaldar og norðlægar aðstæður og inniheldur bindiefni sem Nordsjö hefur einkaleyfi fyrir, en það tryggir einstaka bindingu við undirlagið og myndar veðurþolna filmu sem ver viðinn sérlega vel. Ef Professional VX+ 2 in 1 er notuð samhliða Tinova Wood Base Oil má gera ráð fyrir að málningin endist í allt að 12 ár sé rétt staðið að málun í byrjun. FSC 

Þekjandi og lágfyllandi viðarvörn

Tinova Traditional Exterior Tinova Traditional Exterior er terpentínuþynnanleg alkýðolíumálning ætluð á við utanhúss. Olían dregur fram viðaræðarnar og gefur þekjandi og jafna áferð bæði á gamlan og nýjan við. Ef Tinova Traditional Exterior er notuð samhliða Tinova Wood Base Oil og Tinova Traditional Primer Exterior má búast við að ending málningarinnar verði allt að átta ár við eðlilegar aðstæður. FSC