Showing 61–72 of 80 results

Síloxanmálning

Murtex Siloxane

Murtex Siloxane er vatnsþynnanleg, almött síloxan akrýlmálning (steinsílan) til notkunar utanhúss á steypta fleti, pússaða sem ópússaða. Efnið hefur sérstaka öndunareiginleika og hentar þ.a.l. afar vel á múrklæðningar, þ.e.a.s. þegar útveggir eru einangraðir utanfrá. Við málun á pússaðri steypu er mikilvægt að flöturinn sé þéttur og vel bundinn. Í sumum tilfellum þarf að láta nýjar múrklæðningar standa í allt að eitt ár áður en málað er með Murtex Siloxane og er mikilvægt að fylgja fyrirmælum framleiðanda múrefna og viðgerðarefna um þornunartíma fyrir málun. Murtex Siloxane málningin er einnig ætluð til málunar á alla áður málaða fleti en þeir fletir sem málaðir hafa verið með snowcem eða sílíkatmálningu skal þó ætíð endurmála með sílikatmálningu.

Spartlgrunnur

Professional Grund +

Professional Grund+ er almattur, vatnsþynnanlegur grunnur til notkunar á veggi og loft innanhúss. Hann hefur hátt þurrefnainnihald, þekur vel og gefur sérlega góða viðloðun við ólíkt undirlag. Hin einstaka uppbygging efnisins stuðlar að minni notkun yfirmálningar og gefur henni jafnara yfirbragð, bæði í gljáa og áferð. Professional Grund+ er notað sem grunnur á spartlaða fleti, gifsveggi, steinveggi, byggingarplötur af ólíkri gerð o.fl. svanurinn     evropublomid1     Astma-och-Allergi-förbundet

Svarttjara

Svarttjara Svarttjara er lituð trétjara ætluð til yfirborðsmeðferðar á við utanhúss. Hún hefur verndandi eiginleika og er betrumbætt svo hún hentar víða, m.a. í málun eldri og nútíma timburhúsa. Tjaran smýgur vel inn í viðinn og svarta litarefnið verndar gegn UV-geislun sólarinnar ásamt því að gefa fletinum fallegan lit. Svarttjara er notað við málun á nýtt timbur á húsveggjum, girðingastaura, útigeymslur o.fl.

Sveppaeyðandi hreinsiefni

Original Hustvätt Koncentrat

Original Hustvätt Koncentrat er áhrifaríkt óblandað sótthreinsiefni til notkunar utanhúss gegn myglu, óhreinindum og fitu.

Terpentínuþynnanlegur trégrunnur

Tinova Traditional Primer Exterior Tinova Traditional Primer Exterior er terpentínuþynnanlegur alkýðolíugrunnur ætlaður á við utanhúss. Grunnurinn smýgur vel inn í viðinn og hefur góða viðloðun, bæði við nýtt og málað timbur. Tinova Traditional Primer Exterior hindrar rakaupptöku í viði. FSC   

Teygjanleg síloxanmálning

Alphaloxan Flex

Alphaloxan Flex er teygjanleg síloxan akrýlmálning (steinsílan málning), ætluð til notkunar utanhúss. Í Alphaloxan Flex málningunni sameinast bestu eiginleikar steinefna- og plastmálningar; hún hleypir raka vel í gegnum sig en er regnheldin og afar teygjanleg, jafnvel við lágan lofthita. Hún hentar því afar vel á netsprungna múrklæðningar og steinsteypu. Alphaloxan Flex er ætluð til notkunar jafnt á slétta sem grófa fleti. Framleiðendur múrklæðningar mæla eindregið með síloxan málningu á öll múrkerfi, bæði við nýmálun og endurmálun.

Teygjanlegur fylligrunnur

Alphacoat

Alphacoat er teygjanlegur, vatnsþynnanlegur fylligrunnur sem inniheldur kvarsefni og er ætlaður til notkunar utanhúss. Fínsendinn mattur grunnurinn hentar vel til fyllingar í netsprungur og víðari sprungur í steinsteypu, múrklæðningar, múrstein og við almennar steypuviðgerðir. Grunnurinn jafnar áferð á viðgerðum á máluðum flötum. Alphacoat sápast ekki, hleypir raka í gegnum sig, hylur einstaklega vel og gulnar ekki með tímanum.  

Trétjörujárnsúlfat grámaefni

Trétjörujárnsúlfat - grámaefni

Trétjörujárnsúlfat (s. Tjärvitriol) er skógarafurð og þegar viðarflötur er meðhöndlaður með því færast náttúruleg efni sem sjálft tréð notar sér til varnar yfir á viðarflötinn og gerir honum þannig kleift að þola raka á sama tíma og hann nær að anda.Trétjörujárnsúlfat inniheldur einungis þrjú innihaldsefni: trétjöru, balsamterpentínu og grátt litarefni. Ætlað á greni og furu og hentar víða, m.a. við málun eldri og nútíma timburhúsa. Efnið er brúnleitt til að byrja með en þegar tjaran þrengir sér inn í viðinn til að verja það innanfrá, verður gráa litarefnið eftir utaná og gefur viðnum stílhreinan, hlýjan gráma. Ferlið getur tekið mislangan tíma eftir gerð og ástandi viðarins. Veggir sem eru í miklu sólarljósi mattast meira en þeir sem standa í skugga. Trétjörujárnsúlfat má nota á ómeðhöndlaðan við, við sem hefur þegar verið meðhöndlaður með efninu eða tjargaðan við.

Vatnsfæla

Murtex Waterproof

Murtex Waterproof er vatnsfæla af gerðinni sílan/síloxan í formi þykknis sem skal vatnsþynna með vatni fyrir notkun. Efnið hrindir frá sér óhreinindum og veitir vatnsvörn en hleypir engu að síður raka út úr múrnum. Murtex Waterproof notast á steypta fleti, pússaða og ópússaða, sem og múrsteinsveggi. Einnig má efnið standa eitt og sér á sjónsteypu, steiningar- og skeljasandsklæðningum o.fl.

Vatnsþynnanleg epoxýmálning

Wapex 660

Wapex 660 er tveggja þátta vatnsþynnanleg epoxýmálning, ætluð til málunar á steypta fleti innanhúss, s.s. veggi og gólf. Wapex 660 hefur einnig góða viðloðun við flísar. Hún er auðveld í notkun, þolir bleytu og kemísk efni vel, er höggþolin og slitsterk. Málningin er létt í þrifum, lyktarlítil, óeldfim og hentar sérlega vel í rýmum þar sem leysiefnamálning er ekki leyfð.

Vatnsþynnanlegur trégrunnur

Tinova Primer Exterior

Tinova Primer Exterior er vatnsþynnanlegur, þekjandi alkýðolíugrunnur sem hefur góða viðloðun og smýgur vel inn í viðinn. Hann er ætlaður til notkunar á ómálaðan við en hentar einnig á málaðan við. Tinova Primer Exterior hindrar rakaupptöku í viði. FSC 

Veggjamálning 7%

Ambiance Silkematt

Ambiance Silkematt er mött vatnsþynnanleg innimálning sem gefur veggjunum fallega silkimatta áferð. Efnið hefur sterkara yfirborð en önnur veggjamálning og er með góða þvottheldni. Ambiance Silkematt er innanhússmálning til notkunar á steypta veggi, pússaða sem ópússaða, gifsveggi, byggingarplötur o.fl. svanurinn     evropublomid1     Astma-och-Allergi-förbundet